fimmtudagur, júní 07, 2007

Fimm próf eftir

Var í munnlegu prófi í gær, sem ég náði. Þá eru heil fimm próf eftir þar til þessi önn er búin. Á morgun er skriflegt próf, og síðasta prófið, sem er aðalprófið, er 25. júní.

Nú er ég búinn að panta far heim. Ég lendi í Keflavík föstudaginn 29. júní kl. 14:05, að staðartíma.

1 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Gangi þér sem allra best, það eru hvalir að blása hér í djúpinu,einn þeirra endar á grillinu þegar þú kemur heim.
Bestu kveðjur
Doddi og fjölskylda

5:02 e.h.

 

Skrifa ummæli

<< Home